Björgunarsveit leitaði að hring í Reykjavíkurtjörn

Kafari björgunarsveitarinnar Suðurnes við leitir í Reykjavíkurtjörn.
Kafari björgunarsveitarinnar Suðurnes við leitir í Reykjavíkurtjörn.

Tveir kafarar hjá Björgunarsveitinni Suðurnes voru kallaðir til í dag vegna óvenjulegrar beiðni, en ungur maður kallaði eftir aðstoð eftir að hann missti erfðagrip í Tjörnina.

Björgunarsveitin Suðurnes greindi frá aðgerðunum á Facebook-reikningi sínum í dag, en samkvæmt færslu þeirra hafði maðurinn erft hringinn frá frænku sinni, en tapað honum við að gefa öndunum brauð við Reykjavíkurtjörn.

Kafarar björgunarsveitarinnar fóru á vettvang og hófu leit að hringnum á botni tjarnarinnar með myndavél. Eftir tveggja klukkustunda leit var ákveðið að kafari myndi fara á botninn en það bar ekki frekari árangur.

Björgunarsveitin ákvað hins vegar að nýta tækifærið til æfingar og halda leitinni eitthvað áfram, en ekki hafa borist frekari fregnir af hringnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert