„Það er góð tilfinning að hafa lokið þessu verki,“ segir Beate Stormo, eldsmiður og bóndi í Kristnesi í Eyjafjarðarsveit, en hefur undanfarin tvö ár verið önnum kafin við að smíða risakúna Eddu. Kýrin verður nýtt kennileiti í sveitinni sem er eitt helsta framleiðsluhérað mjólkur hér á landi. Kýrin er þrír metrar á hæð, fimm á lengd og 1,40 á breiddina.
Beate segir að vel hafi gengið allan tímann og tímabilið slysalaust en fyrir það beri að þakka.
„Það er mikið lán því bæði vorum við um tíma að vinna hátt upp og með alls kyns vélar og tæki sem hægt er að slasa sig á.“ Hún segir að margir hafi lagt hönd á plóginn, en hvað mest hafi Simon Byler frá Sviss, Lina Söderberg frá Svíþjóð og Björn Sighvatsson á Sauðárkróki hjálpað til. „Án þeirra framlags hefði ég aldrei klárað þetta,“ segir hún en auk þeirra þremenninga hafi fleiri líka tekið þátt í smíðinni enda stórverkefni.
„Þetta var líkamlega erfitt og það þarf líka að hugsa verkfræðina í þessu þegar verið er að smíða þrívíddarskúlptúr.“
Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu í dag.