Engin lending er komin í salernismál húsnæðis Kjörbúðarinnar á Djúpavogi, sem sagt hefur verið frá í Morgunblaðinu.
Á fundi heimastjórnar á föstudag var aftur fjallað um málið, en þá lágu fyrir bréf rekstraraðila og Heilbrigðiseftirlits Austurlands.
Áður höfðu Samkaup lýst því yfir að ólíklegt væri að fyrirtækið tæki þátt í að kosta salernisaðstöðu, því aðrir leigjendur hússins tækju ekki þátt í því, sem reyndist rétt, því bæði Íslandspóstur og ÁTVR skrifuðu heimastjórninni og kváðust ekki geta tekið þátt í rekstri hreinlætisaðstöðu fyrir ferðamenn.
Heilbrigðiseftirlit Austurlands hafði sent heimastjórn erindi þess efnis að beðið væri eftir svörum frá Umhverfisstofnun um málið, en eftirlitið hafði fengið fyrirspurn frá heimastjórninni um hvort ekki væri skylt að sjá viðskiptavinum fyrir salernisaðstöðu.
Á fundinum var bókað að heimastjórnin harmaði þessi viðbrögð, ekki síst í ljósi þess að bæjarfélagið hygðist taka þátt í þessari fjármögnun.