Fyrirtöku í vopnalagahluta hryðjuverkamálsins svokallaða, sem átti að fara fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun, hefur verið frestað um rúman mánuð.
Spurður út í ástæðuna fyrir því segir Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari hjá embætti héraðssaksóknara, að ekki sé búið að taka ákvörðun um að gefa út nýja ákæru í hryðjuverkalið málsins, auk þess sem verjendur sakborninganna tveggja séu ekki tilbúnir með greinargerðir sínar.
Embætti héraðssaksóknara hefur þrjá mánuði til að gefa út nýja ákæru og rennur lokafresturinn út við fyrirtökuna, sem miðað er við að fari fram 12. júní.
Við þingfestingu málsins í mars síðastliðnum upplýsti héraðssaksóknari að enn væri óvíst hvort gefin yrði út ný ákæra undir hryðjuverkalið málsins. Átti það að koma í ljós í dag.
Málinu hefur tvívegis verið vísað frá í héraðsdómi og Landsrétti vegna óskýrleika ákæru.