Sumarið virðist ekki vera langt undan en hiti mældist rúmar 17 gráður sums staðar á landinu í dag samkvæmt mælingum Veðurstofu.
Hiti mældist mestur í hamrakvínni Ásbyrgi í dag eða um 17,2 gráður en einnig var heitt í lofti á Tálknafirði þar sem 16,9 gráða hiti mældist.
Ekki léku veðurguðirnir þó við alla landsmenn en hiti mældist á tímabili aðeins 0,8 gráður á Raufarhöfn og 1,1 gráða á Siglufirði.