Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir frekari skýringum á afstöðu Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, til hæfis hans vegna sölu á 22,5% hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. í mars í fyrra.
Í tilkynningu kemur fram að umboðsmaður fer einnig fram á að afhent verði öll þau gögn sem fyrir liggja um samskipti Bjarna og ráðuneytisins við Bankasýslu ríkisins frá því að söluferlið hófst þar til úthlutun hlutabréfa lauk, m.a. tölvupóstsamskipti, minnisblöð og símtöl.
Í mars óskaði umboðsmaður eftir tilteknum skýringum og upplýsingum frá ráðherra, meðal annars hvort hæfi Bjarna hafi verið fullnægt að því snertir söluna á hlutum ríkisins í bankanum til Hafsilfurs ehf., sem er félag í eigu Benedikts Sveinssonar, föður Bjarna.
Svar frá ráðherra barst 24. mars en nú er óskað eftir nánari og ítarlegum skýringum á afstöðu ráðherra, m.a. hvort hann telji það hafa verið forsendu hugsanlegs vanhæfis síns í málinu að hann hefði vitneskju um að einkahlutafélagið væri meðal bjóðenda.
Umboðsmaður telur en enn ekki fyllilega ljóst hvort ráðherra telji það fyrirkomulag sem viðhaft var við söluna hafi í reynd tryggt að gætt yrði hæfisreglna en í því tilliti er m.a. spurt um hvort raunhæft hefði verið að kanna hvort fyrirhugaðir kaupendur hefðu þau tengsl við ráðherra að slík álitamál vöknuðu.
„Í ljósi þess að í svari ráðherra kemur fram að engin athugun á slíkum tengslum fór fram innan ráðuneytisins óskar umboðsmaður einnig eftir upplýsingum um hvort það hafi litið svo á að Bankasýslunni bæri að kanna slík atriði. Spyr hann í því sambandi hvort stofnuninni hafi verið ljóst að einkahlutafélag í eigu föður ráðherra væri á meðal bjóðenda og þá hvers vegna athygli ráðuneytisins hafi ekki verið vakin á því,“ segir í tilkynningunni.
Svör skuli hafa borist umboðsmanni eigi síður en 9. júní.