Rafmagnsbilun varð um klukkan sex í morgun í Reykholti, Biskupstungum og víðar, og er unnið að viðgerð.
Í tilkynningu á vef Rarik kemur fram að verið sé að leita að bilun.
Fólk sem hefur upplýsingar sem gætu hjálpað við bilanaleit, er beðið um að hafa samband við svæðisvakt Rarik á Suðurlandi í síma 528 9000.
Uppfært 10:30
Rafmagnsbilun varð í 33kV streng milli Flúða og Reykholts. Unnið er að viðgerð og vonast er að viðgerð ljúki um klukkan 13.