Reyna að leysa hnútinn rétt fyrir verkfall

Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB og Heiða Björg Hilmisdóttir formaður …
Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB og Heiða Björg Hilmisdóttir formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Samsett mynd

Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga (SNS) á fund, föstudaginn næsta klukkan 13.

Félagsmenn BSRB í sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og Suðurnesjum, hafa samþykkt verkfallsboðun sem nær til starfs­fólks leik- og grunn­skóla, frí­stunda­heim­ila, mötu­neyta og hafna í sveit­ar­fé­lög­un­um.

BSRB vísaði kjaradeilum ellefu aðildarfélaga og SNS til embættis ríkissáttasemjara fyrir rúmum mánuði.

Fyrstu verkfallsaðgerðir hefjast á mánudaginn eftir viku, að öllu óbreyttu.

Síðasti fundur deiluaðila var á þriðjudaginn í síðustu viku. Elísabet Ólafsdóttir, skrifstofustjóri hjá ríkissáttasemjara, segir hefð fyrir því að boða til fundar skömmu áður en verkfallsaðgerðir hefjast. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert