Sjálfsafgreiðslustöð N1 fór aldrei í grenndarkynningu

Djúpivogur.
Djúpivogur. Morgunblaðið/Siggi Bogi

Heimastjórn Djúpavogs kom saman til fundar á föstudag og ákvað að kalla eftir svörum í máli frá síðasta ári, þar sem umhverfis- og framkvæmdaráði var falið að kanna hvort staðsetning sjálfsafgreiðslutöðvar N1 á Djúpavogi stæðist gildandi skipulag.

Stöðin fór aldrei í grenndarkynningu á sínum tíma og var því sett niður án alls samráðs við íbúa. Nú þegar ferðamannastraumur eykst ár frá ári og þungaflutningar einnig er það mat heimastjórnar að önnur staðsetning fjær íbúabyggð væri hentugri.

Þá opnuðust einnig möguleikar til þess að byggja upp frekari þjónustu í kringum ferðamenn. Ákveðið var að boða til fundar með fulltrúa N1 vegna málsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert