Skora á ríkisstjórnina í fíkniefnamálum

Ráð Rótarinnar hvetur til afglæpavæðingar.
Ráð Rótarinnar hvetur til afglæpavæðingar. mbl.is/Valgarður Gíslason

„Afglæpavæðing neysluskammta er ekki valkvæður hluti skaðaminnkunarstefnu, hún er lykilþáttur í því að tryggja mannréttindi fólks með vímuefnavanda,“ segir í ályktun ráðs Rótarinnar, félags um velferð og lífsgæði kvenna.

Fjallar ályktunin um skaðaminnkun og afglæpavæðingu og kemur þar fram að Rótin skori á ríkisstjórnina að þróa skaðaminnkandi lágþröskuldaúrræði, aðgengilegt öllum, styðja við uppbyggingu meðferðarstarfs innan opinberra stofnana, byggðu á gagnreyndri þekkingu og kynjamiðaðri nálgun og fleira. Áskoranir Rótarinnar eru alls fimm.

„Rótin lýsir miklum vonbrigðum með að horfið hafi verið frá gerð frumvarps um afglæpavæðingu neysluskammta. Refsistefna í lögum, hvernig sem hún er framkvæmd, skaðar vímuefnanotendur, viðheldur fordómum, jaðarsetningu og vinnur gegn mannréttindum,“ segir í ályktun ráðsins.

Nán­ari um­fjöll­un er að finna í Morg­un­blaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert