Landsréttur staðfesti á dögunum úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að rússneskumælandi karlmaður sæti gæsluvarðhaldi til næstkomandi föstudags, 12. maí.
Maðurinn er sakaður um fjársvik og skjalafals. Fram kemur í úrskurði héraðsdóms að maðurinn hafi í áraraðir dvalið í húsnæði fyrrverandi sambýliskonu sinnar, sem lést árið 2014, tekið út lyfseðilsskyld lyf hennar og notað fjármuni hennar, en hún fær enn greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins. Húsnæðið er á vegum Félagsbústaða.
Í úrskurði héraðsdóms kemur fram að lögreglan telji gæsluvarðhald yfir manninum nauðsynlegt til að tryggja að hann reyni ekki að komast úr landi eða reyni með öðrum hætti að komast undan málsókn eða fullnustu refsingar.
Málið komst upp 4. apríl þegar lögreglan var kölluð á vettvang vegna meints heimilisofbeldis mannsins gagnvart núverandi sambýliskonu sinni. Hún sagði fyrrverandi sambýliskonu hans hafa látist fyrir mörgum árum og að hann tæki enn út lyf í nafni hennar. Maðurinn neitaði því í skýrslutöku að konan væri látin.
Fram kemur í úrskurðinum að maðurinn sé með langan sakaferil að baki og sé þekktur fyrir að hverfa sporlaust. Ekki er vitað hver maðurinn er, en hann kýs að tala rússnesku.
Þegar hann var færður á lögreglustöðina að Hverfisgötu voru fingraför hans borin saman við fingraför sem send voru frá Interpol af aðila skráðum með sama nafn og fæðingardag. Niðurstaða samanburðarrannsóknarinnar var sú að fingraförin voru ekki af sama manni.