Vor í lofti vegna mildra nátta

„Mildar nætur segja meira um vorkomuna en hæsti hiti dagsins!“ …
„Mildar nætur segja meira um vorkomuna en hæsti hiti dagsins!“ segir Einar í Facebook-færslu veðurvefsins Bliku. mbl.is/Kristinn Magnússon

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur greinir frá því að hitinn í Reykjavík fór vart niður fyrir 9 stig í nótt. 

Mildar nætur segja meira um vorkomuna en hæsti hiti dagsins!“ segir Einar í Facebook-færslu veðurvefsins Bliku. 

Í gær spáði hann 16 stiga hita yfir miðjan daginn í dag en Veðurstofa Íslands spáir 12 stigum. Einar segir muninn liggja í skýjafarinu. 

Þó skýjahulan sé fremur þunn yfir höfuðborgarsvæðinu, bendir flest til þess að sólarlítið verði í dag og væta með köflum síðdegis og í kvöld.

Þá bendir Einar á að reiknað sé með skilum úr suðvestri snemma á föstudag. „En í kjölfar þeirra er gert ráð fyrir talsvert svalara lofti sem ættað er úr suðvestri og síðar úr vestri. Því er spáð um helgina, en meiri spurning er síðan um framhaldið.“


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert