Urður Egilsdóttir
Dómi allra mannanna fjögurra sem voru dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur í stærsta kókaínmáli sem komið hefur upp hér á landi, hefur verið áfrýjað til Landsréttar.
Páll Jónsson hlaut tíu ára fangelsisdóm, Daði Björnsson hlaut sex ára og sex mánaða fangelsisdóm, Jóhannes Páll Durr hlaut sex ára fangelsisdóm og Birgir Halldórsson hlaut átta ára fangelsisdóm í héraðsdómi í byrjun apríl.
Hulda María Stefánsdóttir saksóknari staðfestir við mbl.is að Páll áfrýjað málinu sjálfur en ákæruvaldið áfrýjaði gagnvart hinum þremur mönnunum.
Áfrýjunin var bókuð hjá Landsrétti 2. maí og er óvíst hvenær málið verður tekið fyrir.
Mennirnir eru dæmdir fyrir að hafa, ásamt óþekktum aðila, ætlað að flytja inn 99,25 kíló af kókaíni hingað til lands frá Brasilíu með viðkomu í Hollandi, þar sem fíkniefnin voru haldlögð af yfirvöldum. Efnin voru falin í sjö trjádrumbum.