Urður Egilsdóttir
„Höfuðborg Íslands – í sömu aðstæðum og 250 manna sveitarfélag. Þetta er alveg svakalegt,“ sagði Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, á borgarstjórnarfundi í dag og vísaði í bréf sem eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga (EFS) sendi meðal annars til Reykjavíkurborgar.
Í bréfinu kemur fram að fjárhagsáætlun ársins 2023 uppfylli ekkert af þremur lágmarksviðmiðum nefndarinnar um A-hluta rekstrar. Sex sveitarfélög uppfylla ekkert lágmarksviðmiðanna, en auk Reykjavíkur eru það Húnaþing vestra, Seltjarnarnesbær, Árborg, Skagaströnd og Tálknafjarðarhreppur.
Ragnhildur talaði um gegndarlausa skuldasöfnun borgarinnar og sagði að borgarstjórn þyrfti „í guðanna bænum að gera eitthvað“.
Þá efaðist hún um áhuga almennings til að lána borginni peninga m.t.t. skuldabréfaútboðsins sem á að fara fram á morgun.
Ragnhildur sagði að eitthvað yrði að gera til að koma í veg fyrir að borgin verði komin í greiðsluþrot fyrir árið 2024.
„Þessi hallarekstur er enn þá til staðar. Þessi skuldasöfnun er enn þá til staðar. Þú getur komið með allar skýringar í heiminum en þær gera þetta ekki marklaust,“ sagði hún.