Góðsemi í garð banka gæti kárnað

Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, segir að ríkur vilji sé til þess að færa greiðslumiðlun til Íslands. Bönkum hafi verið gefið færi á því að taka upp greiðslumiðlunarkerfi hérlendis og þeir hafi fengið góðlátleg tilmæli þess efnis. Sú góðsemi gæti farið að kárna ef lausnir fara ekki að láta á sér kræla. 

Þetta kom fram í svari Ásgeirs við fyrirspurn Loga Einarssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, í efnahags- og viðskiptanefnd, á opn­um fundi nefndarinnar um skýrslu fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd­ar Seðlabanka Íslands.

Ekki hægt að klippa á strengi

„Við viljum ekki vera háð erlendum aðilum. Bæði í samhengi við mál sem komu upp þegar hryðjuverkalög voru sett á í Bretlandi á sínum tíma, en einnig þannig að ekki sé bara hægt að klippa á þessa strengi (sæstrengi),“ segir Ásgeir. 

Hann segir að Seðlabankinn hafi fjárfest í Reiknistofu bankanna (Rb) og komið upp nýju millibankakerfi. Hugmyndin sé að byggja smágreiðslukerfi ofan á það. „Við erum að ýta við bönkunum með þetta með góðlátlegum hætti, en sú góðsemi gæti farið að kárna ef fram heldur sem horfir,“ segir Ásgeir.

Eins og fram hefur komið telur Seðlabanki Íslands þjóðhagslega ógn stafa af núverandi fyrirkomulagi smágreiðslumiðlunar hér á landi. Er það vegna þess að stærstur hluti miðlunarinnar fer í gegnum kerfi erlendra fyrirtækja. Unnið hefur verið að lausn með innlendum aðilum. Þetta kom fram í máli Gunnars Jakobssonar, aðstoðarseðlabankastjóra fjármálastöðugleika, á fundi fjármálastöðugleikanefndar bankans í mars og  í hefti um fjármálastöðugleika.

90% smágreiðslna á borði erlendra fyrirtækja

Rúmlega 90% af innlendri smágreiðslumiðlun fer í dag fram með greiðslukortum og í 99% tilfella er um að ræða kort sem útgefin eru af Visa og MasterCard eða snjallforritum sem byggjast á tengingu við þau. Þar með fer stærsti hluti smágreiðslumiðlunar í gegnum innviði þessara erlendu fyrirtækja, en þetta á bæði við um heimildagjöf og jöfnun innlendra kreditkorta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert