Það verður hæg suðlæg eða breytileg átt í dag og víða súld eða rigning, en líkur á skúrum sunnan til seinnipartinn. Það rofar sums staðar til norðaustanlands og sést þá til sólar, en áfram þokuloft úti við sjávarsíðuna, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings.
Hiti verður á bilinu 4 til 14 stig.
Á morgun má búast við vestlægri átt, skýjað verður að mestu, skúrir á víð og dreif, en bjart með köflum suðaustan til.
Við Nýfundnaland er vaxandi lægð á hægri hreyfingu norður, en úrkomusvæðið mun líklega koma yfir vestanvert landið á fimmtdagskvöld með tilheyrandi rigningu á þeim slóðum. Helst þó væntanlega þurrt á austurhelmingi landsins til föstudags þegar rignir í flestum landshlutum.