Langtímaveðurspár eru nú lofandi, samkvæmt Einari Sveinbjörnssyni veðurfræðingi.
Á veðurvefnum Bliku segir Einar að vissulega hafi verið kalt fram undir síðustu mánaðamót, en síðan hafi vorað með ágætum.
„Fyrir utan hálfgildingshret í spánum á sunnudag og mánudag (14. og 15. maí), er langtímaútlitið lofandi,“ segir Einar.
Spá Evrópsku reiknimiðstöðvarinnar (ECMFC) sýnir greinilegt háþrýstisvæði upp úr 20. maí sem er að sögn Einars á „góðum“ stað.