Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gær tilkynning um yfirstandandi innbrot í sjoppu. Þegar þangað var komið var meintur innbrotsþjófur hinn rólegasti að gæða sér á mat fyrir utan.
Málið reyndist þá allt byggt á misskilningi, að því er fram kemur í dagbók lögreglu, en sjoppan er opin allan sólarhringinn og var innbrotsþjófurinn viðskiptavinur.
Þá hafði lögreglan afskipti af ungmennum í gær sem voru að neyta fíkniefna. Þau reyndust einnig vera með fíkniefni í tösku sem var meðferðis. Haft var samband við foreldra og tilkynning send til barnaverndar.
Tilkynning barst um menn að drekka í bifreið við bar í Austurbænum. Þegar lögreglu bar að stóðu mennirnir utan við bifreiðina og því ekki ástæða til frekari afskipta, segir í dagbókinni, enda engin vitni sem sáu mennina aka bifreiðinni.
Einn var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna. Sá reyndist einnig geyma fíkniefni. Var hann laus að blóðsýna- og skýrslutöku lokinni.