Ólafur Örn gerður heiðursfélagi FÍ

Ólafur Örn Haraldsson.
Ólafur Örn Haraldsson. mbl.is/Sigurður Bogi

Ólafur Örn Haraldsson hefur verið gerður heiðursfélagi í Ferðafélagi Íslands (FÍ). Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.

Ólafur Örn var forseti FÍ í átján ár, frá árinu 2004 til 2021. Tekið er fram í tilkynningunni að mikill uppgangur hafi verið í starfi félagsins í forsetatíð hans. Mikil starfsgleði hafi ríkt, bæði í stjórn og starfsliði félagsins. Þúsundir nýrra félagsmanna hafi gengið í félagið, deildum innan félagsins hafi fjölgað og mörg ný verkefni litið dagsins ljós.

Í forsetatíð hans stofnaði FÍ meðal annars Ferðafélag barnanna og Ferðafélag unga fólksins með það að markmiði að ná betur til barna og unglinga og stuðla að heilbrigðum lífsstíl.

Ólafur hefur skrifað tvær árbækur FÍ, árbókina 2010 um Friðland að Fjallabaki og árbókina 2021 um Laugaveginn.

Sjö fèlagar voru einnig sæmdir gullmerki félagsins; Steingerður Sigtryggsdóttir, Ingunn …
Sjö fèlagar voru einnig sæmdir gullmerki félagsins; Steingerður Sigtryggsdóttir, Ingunn Sigurðardóttir, Helga Garðarsdóttir, Gisli Már Gíslason, Guðmundur Óli Sigurðsson, Heiðrún Meldal og Sigrún Valbergsdóttir, fyrir einstakt starf í þágu félagsins. Ólöf Kristín Sivertsen forseti FÍ sæmdi þessa félaga gullmerkinu. Ljósmynd/Aðsend

Hvatt landsmenn til að ferðast um landið

Meðfylgjandi er texti sem lesinn var upp þegar Ólafur var gerður að heiðursfélaga:

Ólafur Örn var forseti Ferðafélags Íslands frá 2004-2021, á miklu blómaskeiði félagsins. Hann hafði áður átt langan og farsælan feril sem ferðafélagi og ekki síst sem frumkvöðull í ferðamennsku og um leið hvatamaður að mörgum samfélagslegum verkefnum sem hann hefur lagt lið, oftar en ekki í sjálfboðavinnu.

Sem frumkvöðull í ferðmennsku hefur Ólafur Örn unnið mörg afrek og tekist á við margar krefjandi áskoranir. Hann gekk m.a. á gönguskíðum yfir Grænlandsjökul og var í íslenska leiðangrinum sem gekk yfir Suðurpólinn án aðstoðar á leiðinni. Það var fyrsti leiðangur Íslendinga á pólinn án aðstoðar og vakti mikla athygli.

Þá hefur Ólafur gengið á marga háa og krefjandi fjallatinda víða um heim og er í hópi þeirra Íslendinga sem hafa ferðast hvað mest um Ísland og um leið hvatt aðra landsmenn til að ferðast um landið og kynnast náttúru þess, sögu og menningu.

Eins og áður hefur komið fram var Ólafur Örn forseti Ferðafélags Íslands í 18 ár og vert er að taka fram í þessu samhengi að starf forseta er sjálfboðaliðastarf. Í forsetatíð hans var mikill uppgangur í starfi félagsins.

Þúsundir nýrra félagsmanna gengu í félagið, deildum fjölgaði og ný verkefni litu dagsins ljós, bæði lýðheilsuverkefni og önnur samfélagsleg verkefni.

Landsmenn voru hvattir til að ferðast innanlands og kynnast landinu, byggð var upp aðstaða og þjónustu fyrir ferðamenn, skálar voru endurnýjaðir, orkuskipti urðu í Þórsmörk, stórframkvæmdir voru í gangi í Hornbjargsvita, uppbygging á Valgeirsstöðum á Ströndum, nýir skálar og ný skálavarðahús, nýjar gönguleiðir, meðal annars um Jarlhettuslóðir, og staðið var fyrir fjölbreyttri útgáfu og fræðslu á sviði ferðamennsku og náttúru.

Ólafur hefur einnig ritað tvær árbækur Ferðafélags Íslands, árbókina 2010 um Friðland að Fjallabaki, sem nú er uppseld, og árbókina 2021 um Laugaveginn sem einnig fékk frábærar viðtökur og lítið er eftir af upplagi bókarinnar.

Í forsetatíð hans stofnaði FÍ meðal annars Ferðafélag barnanna og Ferðafélag unga fólksins með það að markmiði að ná betur til barna og unglinga og stuðla að heilbrigðum lífsstíl. Þessi félög hafa fengið gríðarlega góð viðbrögð. Eins má nefna lýðheilsuverkefni sem hafa náð til þúsunda manna um allt land sem tekið hafa fyrsta skrefið í átt að betri lífsstíl.

Þetta eru allt verkefni sem Ólafur Örn hefur leitt og Ferðafélagið hefur um leið lagt sitt af mörkum í mikilvægum verkefnum sem snúa að landi og þjóð.

Í forsetatíð Ólafs ríkti mikil starfsgleði og eining bæði í stjórn og í starfsliði félagins sem var ekki síst að þakka mikilli félagslegri færni og stjórnunarhæfileikum hans og reynslu.

Það er okkur því sannarlega mikil ánægja að gera Ólaf Örn Haraldsson að heiðursfélaga Ferðafélags Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert