Öryggislínu komið fyrir við Heljarkamb

Öryggislínu komið fyrir við Heljarkamb
Öryggislínu komið fyrir við Heljarkamb Ljósmynd/Bjarni Már Björgvinsson

Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli setti um helgina upp öryggislínu við Heljarkamb, hrygg sem tengir Fimmvörðuháls við Morinsheiði. 

Mun þetta vera í þriðja skipti sem sveitin setur upp öryggislínu við kambinn. Að sögn Birgis Svans Björgvinssonar, félaga í Dagrenningu, var kveikjan fjöldi útkalla.

Öll útköllin hefði mátt leysa með bættara aðgengi um Heljarkamb, en um er að ræða gagnlega slysavörn í upphafi sumartímabilsins sem fækkar um leið útköllum.

Þegar líða tekur á sumarið og snjóa leysir kemur síðan í ljós öryggiskeðja og um leið verður einfaldara að ferðast um svæðið. Þá verður spotti björgunarsveitarinnar fjarlægður. 

Félagar úr Björgunarsveitinni Dagrenning, Hvolfsvelli, við farartæki ferðarinnar
Félagar úr Björgunarsveitinni Dagrenning, Hvolfsvelli, við farartæki ferðarinnar Ljósmynd/Birgir Svanur Björgvinsson

Yfirleitt hafa um 4-5 félagar úr Dagrenningu farið saman á snjósleðum upp á Fimmvörðuháls en í vetur eignaðist sveitin snjóbíl og því var hann einnig nýttur í þessari ferð.

Þá var ferðin einnig nýtt til að skoða öruggar leiðir fyrir ferðasumarið ef til útkalls kemur, en þá er ágætt að vita fyrir fram hvaða leiðir er hægt að fara. 

Björgunarsveitin Dagrenning hvetur alla til þess að fara varlega á ferðum sínum um Fimmvörðuháls og huga vel að búnaði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert