Skæð fuglaflensa greindist í stokkönd í Garðabæ.
Fuglinn fannst í húsagarði í Garðabæ í lok mars, en tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum bárust niðurstöðurnar í gær. Fjöldi tilkynninga um dauðar ritur hefur borist Matvælastofnun.
Samkvæmt tilkynningu Matvælastofnunar er hætta á smiti frá villtum fuglum í alifugla álitin töluverð og því mikilvægt að allir sem halda alifugla gæti ýtrustu smitvarna.
Matvælastofnun hefur borist fjöldi tilkynningar um veikar og dauðar ritur á Seltjarnarnesi, Reykjanesi og Keflavík og um eina dauða grágæs vestast á Seltjarnarnesi.
Sýni voru tekin á Reykjanesi og við Bakkatörn á Seltjarnarnesi, en ekki fundust fuglaflensuveirur í þeim samkvæmt niðurstöðum sem bárust frá Keldum í gær.
Einnig var tekið sýni úr grágæsinni sem fannst dauð fyrir helgi, en ekki greindist fuglaflensa í henni heldur og því óljóst hvað veldur þessum skyndilega mikla fugladauða á svæðunum.
Matvælastofnun hefur málið til rannsóknar og biðlar til almennings að upplýsa stofnunina um veika og dauða villta fugla. Sérstaklega sé það mikilvægt, taki fólk eftir veikindum í öðrum fuglategundum en ritum.