51 andlát að meðaltali í hverri viku

Fyrstu 14 vikur ársins 2023 dóu að meðaltali 51,0 í …
Fyrstu 14 vikur ársins 2023 dóu að meðaltali 51,0 í hverri viku eða fleiri en fyrstu 14 vikur áranna 2017-2022 dóu 48,2 að meðaltali. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Á fyrstu 14 vikum ársins dóu að meðaltali 51 í hverri viku. Það er fjölgun frá árunum á undan en á fyrstu 14 vikum áranna 2017 til 2022 dóu að meðaltali 48,2 í hverri viku. 

Tíðasti aldur látinna fyrstu 14 vikur 2023 var 88 ára en 87 ár fyrir sömu vikur á tímabilinu 2017 til 2022.

Að jafnaði dóu flestir í aldursflokknum 90 ára og eldri yfir tímabilið 2017-2022. Tíðasti aldur látinna fyrstu 14 vikur 2023 var 88 ára en 87 ár fyrir sömu vikur áranna 2017-2022. Þetta kemur fram í samantekt Hagstofunnar

Samantektin byggir á upplýsingum úr dánartilkynningum sem skráðar eru hjá Þjóðskrá Íslands. Gögnin gefa góðar vísbendingar um þróun á tíðni andláta þó gera verði ráð fyrir einhverju vanmati í nýjustu tölunum um fjölda látinna, að því er segir á vef Hagstofunnar.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert