Ánægð með upplýsingar til íbúa

Hvorki íbúum né öðrum vegfarendum verður heimilt að fara um …
Hvorki íbúum né öðrum vegfarendum verður heimilt að fara um lokuð svæði á bílum eða rafhlaupahjólum á meðan lokanir eru í gildi

Sigrún Tryggvadóttir, formaður Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur, er ánægð með þær upplýsingar sem íbúar hafa fengið í tengslum við leiðtogafund Evrópuráðsins, sem fram fer dagana 16.-17. maí. Hún hvetur fólk til þess að mæta á upplýsingafund sem haldinn verður í dag fyrir íbúa og rekstraraðila í miðborginni vegna áhrifa leiðtogafundarins á daglegt líf íbúa.

Fundurinn fer fram í Kolaportinu og hefst kl. 17.

Fulltrúar frá forsætisráðuneytinu, utanríkisráðuneytinu, lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, ríkislögreglustjóra og Reykjavíkurborg verða á fundinum og gefst íbúum kostur á að spyrja um það sem brennur á þeim. 

Hvetur fólk til þess að mæta á upplýsingafundinn

Sigrún Tryggvadóttir, formaður Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur, hvetur þá sem eru óánægðir með lokanir sérstaklega til að mæta. Sjálf segir hún að þótt um mikið inngrip sé að ræða sé hún spennt fyrir leiðtogafundinum. Hún er ánægð með þær upplýsingar sem íbúar hafa fengið og segir fund sem haldinn var í apríl til að veita íbúum upplýsingar hafa verið gagnlegan, þótt hún hefði viljað sjá fleiri á honum. 

Aðspurð segist Sigrún ekki hafa heyrt af mörgum sem ætla að flýja miðbæinn meðan á fundinum stendur, þótt líklega komi einhverjir til með að gera það. Helst hafi umræða íbúa snúist um þá auknu flugumferð sem gert er ráð fyrir á Reykjavíkurflugvelli í tengslum við fundinn. Hún rifjar upp að flugumferð einkaflugvéla hafi einnig verið mikil um helgar á árunum 2006-2007. 

Lokanir koma til með að hafa víðtæk áhrif 

Líkt og fram hefur komið í umfjöllunum undanfarnar vikur verða víðtækar lokanir í tengslum við fundinn. Hvorki íbúum né öðrum vegfarendum verður heimilt að fara um lokuð svæði á bílum eða rafhlaupahjólum fá kl. 23 mánudaginn 15. maí til kl. 18 miðvikudaginn 17. maí. 

Á upplýsingasíðu Stjórnarráðsins kemur fram að engar undanþágu verði veittar fyrir umferð ökutækja innan svæðisins. Hvorki má fara inn né út af svæðinu meðan á lokuninni stendur, nema lögregla og viðbragðsaðilar.  

Þrátt fyrir það verður sérútbúinn bíll frá akstursþjónustu fatlaðs fólks staðsettur við Ráðhús Reykjavíkur, aðgengilegur hreyfihömluðum. Fólk er þó beðið um tveggja tíma fyrirvara á pöntun og gengur bíllinn einungis til og frá ráðhúsinu, innan lokaða svæðisins. Þaðan mun fólk þurfa að nýta sér aðra ferðamáta eftir aðstæðum. 

Þeim íbúum sem eiga bílastæði innan lokaða svæðisins er boðið upp á tímabundin aðgangskort í bílakjallara ráðhússins. Hann verður opinn fyrir áskriftarhafa á sama hátt og bílastæðahúsin í Traðarkoti og á Vesturgötu. 

Á sama hátt verða engar almenningssamgöngur innan lokunarsvæðisins. Akstursleiðum Strætó hefur verið breytt ásamt því að gert er ráð fyrir ófyrirséðum röskunum á tímaáætlun víðs vegar um borgina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert