Eiga rétt á skaðabótum vegna bílakjallara

ÍAV vildi byggja bílakjallara og taldi sig eiga rétt á …
ÍAV vildi byggja bílakjallara og taldi sig eiga rétt á því. Hæstiréttur reyndist sammála. Árni Sæberg

Hæstiréttur Íslands hefur staðfest niðurstöðu Landsréttar um að rétt Íslenskra aðalverktaka til skaðabóta frá Hörpu tónlistar og ráðstefnuhúss ohf. og Sítrusar ehf.

Málið var í héraði dæmt Hörpu og Sítrus í vil en Landsréttur sneri dómnum við sem nú hefur verið staðfestur í Hæstarétti. Að auki er Hörpu og Sítrus gert að greiða ÍAV þrjár milljónir króna í málskostnað.

Málið á sér forsögu rammasamningi sem undirritaður var árið 2006. Snéri hann m.a. að byggingu mannvirkja þar sem Harpa stendur í dag. ÍAV var með rétt til að sjá um byggingaframkvæmdir.

Neituðu að ganga til samninga

Í efnahagsþrengingunum árið 2008 var réttur í rammasamningi þrengdur. Eftir stóð einungis réttur til byggingar bílakjallara við tónlistarhúsið.

Tveir af reitunum voru svo seldir árið 2013 og þar á meðal til Reykjavík Development (RD) ehf sem keypti síðar reitina tvo. I framhaldinu neitaði RD að ganga til samninga við ÍAV um byggingu bílakjallara undir þeim, og lét svo annan verktaka sjá um framkvæmdirnar.

Annað dómsmálið 

ÍAV fór í mál við Reykjavík Development sem var sýknað fyrir Hæstarétti. Í framhaldi höfðaði ÍAV mál á hendur Hörpu og Situs á þeim forsendum að ekki hefði verið gætt að því að láta byggingarrétt fylgja með líkt og rammasamningur hafði kveðið á um.

Í niðurstöðu Landsréttar var fallist á kröfu ÍAV um að ekki hefði verið gætt að byggingarréttinum og viðurkennd bótakrafa ÍAV.

Í Landsrétti var ÍAV dæmdar 7 milljónir króna í málskostnað og eins og áður sagði 3 milljónir króna í Hæstarétti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert