Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um eld á iðnaðarlóð við Kalksléttu laust fyrir klukkan sex í morgun.
Í dagbók lögreglu segir að eldurinn hafi reynst minniháttar og að greiðlega hafi gengið að slökkva hann.
Að öðru leyti hefur verið nokkuð rólegt hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan 17 í gær.
Tveir ökumenn voru stöðvaðir í akstri, báðir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og reyndist annar réttindalaus.