Ísland sagt brjóta reglur um gestaflutninga

Rútur koma hingað til lands með skipum og flytja erlenda …
Rútur koma hingað til lands með skipum og flytja erlenda gesti um Ísland. Eggert Jóhannesson

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur sent frá sér álit er snýr að því að óheimilt sé fyrir íslenska ríkið að hamla för t.a.m. rútufyrirtækja á Íslandi umfram tíu samfellda daga líkt og nú er gert. 

Samkvæmt núgildandi löggjöf á Íslandi er flutningsaðilum frá öðrum ríkjum innan EES einungis heimilt að stunda tímabundna gestaflutninga í allt að tíu samfellda daga í hverjum mánuði. Kveða lögin á um skyldu þeirra sem stunda tímabundna gestaflutninga hérlendis að gera hlé á starfsemi í að minnsta kosti tvo virka daga áður en annað tíu daga tímabil hefst.  

„Þetta þýðir til dæmis að erlendir flutningsaðilar geta ekki boðið upp á 14 daga rútuferð um Ísland, jafnvel þótt slík þjónusta sé veitt tímabundið,“ segir í álitinu. Dæmi eru um að rútur komi til landsins í gegnum skipaflutninga og sinni ferðaþjónustu um landið. 

EES-reglur um farþegaflutninga kveða á um að flutningsaðila frá einu EES-ríki sé heimilt að stunda tilfallandi gestaflutninga á landi í öðru EES-ríki tímabundið.

Of takmarkandi skilyrði 

Álitið var sent til Íslands í kjölfar formlegs áminningarbréfs sem sent var í maí 2022.

„Í bréfi sínu komst ESA að þeirri niðurstöðu að með því að halda í gildi innlendri löggjöf, sem felur í sér of takmarkandi skilyrði fyrir því að flutningsaðilar frá öðrum EES-ríkjum geti stundað gestaflutninga á Íslandi, brjóti Ísland í bága við EES-reglur,“ segir í álitinu. 

Þá segir að íslensk löggjöf sé í trássi við meginreglu í EES samningi um frelsi til að veita þjónustu. 

„Íslenska ríkið hefur nú tveggja mánaða frest til að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að hlíta álitinu, en að þeim fresti loknum getur ESA ákveðið að höfða mál fyrir EFTA-dómstólnum,“ segir í álitinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert