ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, sendi íslenskum stjórnvöldum rökstutt álit í dag þar sem fram kemur að Íslandi hafi ekki tekist að setja á laggirnar formlegt fyrirkomulag til að tryggja að gott samstarf sé á milli viðeigandi opinberra aðila áður en rannsókn á flugslysum hefst.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ESA.
Rökstutt álit er annað skrefið í formlegu brotaferli ESA gegn Íslandi. Íslensk stjórnvöld hafa tvo mánuði til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Í kjölfarið ákveður ESA hvort málinu verði vísað til EFTA dómstólsins.
Formlegt áminningarbréf var sent til íslenskra stjórnvalda í maí 2022 þar sem Ísland hafði ekki uppfyllt skyldur sínar samkvæmt Evrópureglugerð um rannsóknir slysa og annarra flugatvika.
ESA telur að Ísland hafi ekki sýnt fram á að formlegt fyrirkomulag sé til staðar milli rannsóknaryfirvalda og annarra yfirvalda sem taka þátt í öryggisrannsóknum, svo sem dómsmálayfirvalda, flugfélaga og björgunarsveita. Þá hefur Ísland ekki tilkynnt um slíkt fyrirkomulag til ESA líkt og reglur gera ráð fyrir.
ESA leggur áherslu á mikilvægi þess að formfesta fyrirkomulag á samstarfi milli opinberra aðila þar sem þeim er ætlað að tryggja að hlutverk séu skýr og samstarf sé skilvirkt í tengslum við flugslys eða flugatvik, eins og fram kemur í tilkynningu ESA.