Landspítali mætti vanda til verka

Jakob Falur Garðarsson er nýjasti gesturinn í Dagmálum.
Jakob Falur Garðarsson er nýjasti gesturinn í Dagmálum. mbl.is/Hallur Már

Að öllum líkindum myndi það spara Landspítalanum mikla fjármuni að ráða fleiri starfsmenn til þess að annast innkaup á sínum vettvangi. Þetta segir Jakob Falur Garðarsson, framkvæmdastjóri Frumtaka, samtaka frumlyfjaframleiðenda á Íslandi. Hann er gestur í nýjasta þætti Dagmála.

Segir hann brögð að því að ekki sé staðið nægilega vel að útboðum á vettvangi þjóðarsjúkrahússins og að það birtist m.a. í því að bjóðendum sé ekki gefinn nægilegur frestur til að taka þátt. Það valdi því að færri tilboð berist en ella væri ef ferlið væri vandaðra.

Þá bendir Jakob Falur á að sú staðreynd að lágt hlutfall nýrra lyfja sem hljóti markaðsleyfi í Evrópu komi snemma inn á markaðinn hér á landi, komi niður á sjúklingum. Það eigi m.a. við um krabbameinslyf sem geti bjargað mannslífum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert