Íslenska lögreglan verður vopnuð á meðan hún sinnir öryggisgæslu í tengslum við leiðtogafund Evrópuráðsins, en frá áramótum hafa íslenskir lögreglumenn fengið um 10.000 klukkutíma í fjölbreytta þjálfun.
Þetta kemur fram á vef island.is þar sem birtar hafa verið margháttaðar upplýsingar til að svara spurningum almennings um fundinn.
Vopnaburði lögreglu hafa landsmenn hingað til ekki vanist.
Að sögn Gunnars Harðar Garðarssonar, upplýsingafulltrúa ríkislögreglustjóra, er lögreglan vel búin undir það að taka á móti þjóðarleiðtogum og tryggja öryggi þeirra jafnt sem almennings á Íslandi.
Hluti þjálfunar vegna fundarins hefur farið fram í samvinnu við hin Norðurlöndin og er lögreglan sögð hafa fengið verðmætan stuðning í formi ráðgjafar frá sænsku lögreglunni.
Íslenska lögreglan verður þó ekki ein síns liðs við öryggisgæslu en erlendir lögreglumenn, flestir frá Norðurlöndunum, munu koma til landsins og vera lögreglu til stuðnings. Hlutverk þeirra eru fjölbreytt en af öryggisástæðum er ekki greint frá fjölda þeirra í aðdraganda fundarins.
Vopnaðir erlendir einstaklingar eru sagðir verða alltaf undir stjórn og í fylgd íslenskra lögreglumanna. Einu gildir hvort um er að ræða erlent lögreglulið eða lífverði þjóðarleiðtoga.