Ný stjórn SOS Barnaþorpanna á Íslandi var kjörin á aðalfundi samtakanna sem haldinn var síðastliðinn mánudag. Á fundinum tók sú lagabreyting gildi að í stað þriggja manna stjórnar og tveggja varamanna er stjórn samtakanna nú skipuð fimm stjórnarmönnum en engum varamönnum líkt og fram kemur á vef samtakanna.
Þeir sem kosnir voru í stjórn samtakanna eru María F. Rúriksdóttir, Hildur Hörn Daðadóttir, Kristján Þ. Davíðsson, Ólafur Örn Ingólfsson og Þorsteinn Arnórsson og er Kristján að nafninu til starfandi formaður samtakanna
Er þetta annað árið í röð sem aðalfundur SOS er haldinn eftir lagabreytingu sem færði aukið vald til styrktaraðila í stað fulltrúaráðs. Nú hafa allir skráðir félagar rétt til fundarsetu en þeir eru alls um 150 talsins og mættu 20 manns á fundinn.
Á árinu 2022 styrktu 21.874 einstaklingar og 717 fyrirtæki SOS Barnaþorpin á Íslandi, ýmist með mánaðarlegum framlögum, stökum eða hvoru tveggja og fjölgaði styrktaraðilum um 372 frá fyrra ári.
Ársreikningur samtakanna fyrir árið 2022 var samþykktur á fundinum en þar kemur fram að framlög einstaklinga og fyrirtækja námu 616,6 milljónum kr. á árinu. Jafnframt hækkuðu opinber framlög milli ára úr 40 milljónum kr. í 94,8 milljónir kr. frá árinu 2021. Heildarframlög styrktaraðila námu þannig 711,5 milljónum kr. á árinu 2022 og hækkuðu þau um 88,7 milljónir kr. milli ára.
Á árinu runnu 826 kr. af hverju 1.000 kr. framlagi í sjálft hjálparstarfið en launakostnaður vegna erlendra og innlendra verkefna var 17,4% eða 2,6% undir þaki á rekstrarkostnaði samtakanna.
Fréttin hefur verið uppfærð
Í upprunalegu fréttinni kom fram að Þorsteinn Arnórsson hafi verið kjörinn nýr formaður í stjórn SOS Barnaþorpanna á Íslandi á aðalfundi samtakanna sem haldinn var síðastliðinn mánudag. Þorsteinn var áður fjármálastjóri samtakanna árin 2015-2020.
Nú kemur fram að ný stjórn SOS Barnaþorpanna á Íslandi var kjörin á aðalfundi samtakanna sem haldinn var síðastliðinn mánudag.
Kristján Þ. Davíðsson er að nafninu til starfandi formaður samtakanna.