Rauf skilorð með meirháttar skattalagabroti

Mazonas hefur ítrekað verið dæmdur fyrir meiriháttar skattalagabrot.
Mazonas hefur ítrekað verið dæmdur fyrir meiriháttar skattalagabrot. mbl.is/Þór

Antanas Mazonas var 25. apríl síðastliðinn dæmdur til 18 mánaða fangelsisvistar sem skilorðsbundin er til þriggja ára. Þá var hann dæmdur til greiðslu tæplega 4,2 milljóna króna sektar í ríkissjóð og að sæta 90 daga fangelsisvistar komi ekki til greiðslunnar innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.

Mazonas stóð ekki skil á virðisaukaskatti, sem stjórnarmaður og framkvæmdastjóri einkahlutafélags, innan lögboðins frests, vegna uppgjörstímabilanna janúar til febrúar, mars til apríl og maí til júní á rekstrarárinu 2022, samtals að fjárhæð rúmar 40 milljónir króna.

Þá stóð hann ekki skil, innan lögboðins frests, á staðgreiðslu opinberra gjalda sem haldið var eftir af launum starfsmanna félagsins vegna greiðslutímabilanna mars, apríl og júlí rekstrarárið 2022, samtals að fjárhæð tæpar 1.200 þúsund krónur.

Ítrekuð meiriháttar skattalagabrot

Hann játaði þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Mazonas var með dómi héraðsdóms í nóvember 2017 dæmdur í átta mánaða fangelsi sem bundið var skilorði í tvö ár og til greiðslu sektar að fjárhæð 95 milljónir króna fyrir tæplega 48 milljóna króna skattalagabrot. Þá var hann með dómi héraðsdóms í apríl árið 2021 dæmdur í tíu mánaða fangelsi skilorðsbundið í tvö ár og til greiðslu sektar að fjárhæð 13 milljónir króna fyrir skattalagabrot. Með því skattalagabroti rauf hann að hluta til skilorð dómsins frá nóvember árið 2017. Með brotunum sem Mazonas hefur nú verið sakfelldur fyrir telst hann hafa rofið skilorð dómsins frá í apríl árið 2021.

Skýlaus játning leiddi til refsimildunar

Segir í dómi héraðsdóms að við ákvörðun refsingar sé til þyngingar litið til þess að brot hans námu háum fjárhæðum en til refsimildunar sé litið til skýlausrar játningar hans fyrir dómi. Mazonas hefur staðið skil á vangoldnum greiðslum samkvæmt ákærunni og leit dómurinn til þess við ákvörðun fjárhæðar sektar.

Hann mótmælti kröfu ákæruvaldsins um að vera bannað að stofna félag með takmarkaðri ábyrgð félagsmanna, sitja í stjórn þess, starfa sem framkvæmdastjóri eða koma með öðrum hætti að stjórnun eða fara með meirihluta atkvæðisréttar í slíku félagi í allt að þrjú ár. Hann vísaði til þess að hann hefði þegar greitt allan vangoldinn skatt og væri ekki lengur skráður í stjórn félags og verði það ekki í að minnsta kosti þrjú ár eftir að dómur fellur vegna ákvæða laga um einkahlutafélög. Með hliðsjón af því og atvikum málsins hafnaði dómurinn kröfu ákæruvaldsins um að Mazonas yrði gert að sæta banninu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert