Sveitarfélagið Skagafjörður uppfyllir nú tvö af lágmarksviðmiðum eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga (EFS).
Þetta segir Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Skagafjarðar.
Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2023 uppfyllti sveitarfélagið aðeins eitt lágmarksviðmið.
Greint var frá því á forsíðu Morgunblaðsins í gær að 21 sveitarfélagi hefði borist bréf frá EFS um sveitarfélagið uppfyllti ekki lágmarksviðmið nefndarinnar í fjárhagsáætlun fyrir árið 2023.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023/05/09/borgin_uppfyllir_ekkert_vidmidanna/
Sex sveitarfélög uppfylltu ekkert viðmiðanna, þar á meðal Reykjavikurborg og Árborg. Átta uppfylltu aðeins eitt viðmið, þar á meðal Skagafjörður, og sjö uppfylltu tvö viðmið.
Skagafjörður hefur gert breytingar á fjárframlögum sínum og uppfyllir nú tvö af þremur viðmiðum í stað aðeins eins, að sögn Sigfúsar.
„Hvað Skagafjörð varðar þá benti EFS á að í fjárhagsáætlun fyrir árið 2023 sé gert ráð fyrir 1,5% halla á rekstri A-hluta en rekstrarniðurstaða hans á að öllu jöfnu að vera jákvæð,“ segir Sigfús í samtali við mbl.is.
Framlegð A-hluta hafi þá verið 6,5% en lágmarksviðmiðið 10,2%.
Sigfús segir að sveitarfélagið hafi gert breytingar á fjárframlögum til málefna fatlaðs fólks skömmu fyrir jól, eftir að sveitarfélög voru búin að afgreiða fjárhagsáætlanir.
Sveitarfélagið samþykkti einnig viðauka síðastliðinn mars með þessum tekjuauka.
Viðaukinn hafi haft það í för með sér að rekstrarniðurstaða A-hluta yrði jákvæð um 78,7 milljónir króna á árinu 2023 og samstæðan yrði í heild jákvæð um 239,7 milljónir króna.
„Rekstur A-hluta er því jákvæður og framlegð A-hluta hækkar úr 6,5% upp í 8,9%,“ segir Sigfús.
Skagafjörður uppfylli því nú tvö lágmarksviðmið EFS af þremur með fjármálum sveitarfélaga. Hann segir að enn vanti 1,3 prósentustig upp á að viðmið um framlegð A-hluta náist.