Ný stjórn SOS Barnaþorpanna á Íslandi

Ný stjórn SOS. Frá vinstri, Hildur Hörn, María, Ólafur Örn, …
Ný stjórn SOS. Frá vinstri, Hildur Hörn, María, Ólafur Örn, Þorsteinn og Kristján. Ljósmynd/Aðsend

Ný stjórn SOS Barnaþorpanna á Íslandi var kjörin á aðalfundi samtakanna sem haldinn var síðastliðinn mánudag. Á fundinum tók sú lagabreyting gildi að í stað þriggja manna stjórnar og tveggja varamanna er stjórn samtakanna nú skipuð fimm stjórnarmönnum en engum varamönnum líkt og fram kemur á vef samtakanna

Þeir sem kosnir voru í stjórn samtakanna eru María F. Rúriks­dótt­ir, Hild­ur Hörn Daða­dótt­ir, Kristján Þ. Dav­íðs­son, Ólaf­ur Örn Ing­ólfs­son og Þor­steinn Arn­órs­son og er Kristján að nafninu til starfandi formaður samtakanna

Er þetta annað árið í röð sem aðalfundur SOS er haldinn eftir lagabreytingu sem færði aukið vald til styrktaraðila í stað fulltrúaráðs. Nú hafa allir skráðir félagar rétt til fundarsetu en þeir eru alls um 150 talsins og mættu 20 manns á fundinn. 

Heildarframlög hækkuðu um 88,7 milljónir kr. milli ára. 

Á ár­inu 2022 styrktu 21.874 ein­stak­ling­ar og 717 fyr­ir­tæki SOS Barna­þorp­in á Ís­landi, ým­ist með mán­að­ar­leg­um fram­lög­um, stök­um eða hvoru tveggja og fjölg­aði styrktarað­il­um um 372 frá fyrra ári.

Ársreikningur samtakanna fyrir árið 2022 var samþykktur á fundinum en þar kemur fram að framlög einstaklinga og fyrirtækja námu 616,6 milljónum kr. á árinu. Jafnframt hækkuðu opinber framlög milli ára úr 40 milljónum kr. í 94,8 milljónir kr. frá árinu 2021. Heildarframlög styrktaraðila námu þannig 711,5 milljónum kr. á árinu 2022 og hækk­uðu þau um 88,7 millj­ón­ir kr. milli ára.

Á árinu runnu 826 kr. af hverju 1.000 kr. framlagi í sjálft hjálparstarfið en launakostnaður vegna erlendra og innlendra verkefna var 17,4% eða 2,6% undir þaki á rekstrarkostnaði samtakanna. 

Fréttin hefur verið uppfærð

Í upprunalegu fréttinni kom fram að Þorsteinn Arnórsson hafi verið kjörinn nýr formaður í stjórn SOS Barnaþorpanna á Íslandi á aðalfundi samtakanna sem haldinn var síðastliðinn mánudag. Þorsteinn var áður fjármálastjóri samtakanna árin 2015-2020.

Nú kemur fram að ný stjórn SOS Barnaþorpanna á Íslandi var kjörin á aðalfundi samtakanna sem haldinn var síðastliðinn mánudag.

Kristján Þ. Davíðsson er að nafninu til starfandi formaður samtakanna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert