Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis heldur opinn fund í dag þar sem fjallað verður um fyrirkomulag og framtíð opinberrar skjalavörslu. Fundurinn hefst kl. 10:30 og hægt verður að fylgjast með honum í beinu streymi hér fyrir neðan.
Gestir fundarins verða: Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra, Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður, Sigrún Brynja Einarsdóttir ráðuneytisstjóri menningar- og viðskiptaráðuneytis, Ragnheiður Kristjánsdóttir prófessor í sagnfræði, og Sigurjón Baldur Hafsteinsson prófessor í safnafræði.