Bjarni: 95% félagsmanna mættu ekki í atkvæðagreiðsluna

Bjarni Benediktsson segir að formaður Eflingar fagni því að félagsfólk …
Bjarni Benediktsson segir að formaður Eflingar fagni því að félagsfólk sé sammála forystu félagsins um málið. Þó sé það svo að 95% félagsmanna hafi ekki mætt í atkvæðagreiðsluna. Samsett mynd

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir að niðurstaða í kosningu Eflingar, þar sem félagið samþykkti að segja sig úr Starfsgreinasambandinu, sé ágætt dæmi um hve laus tengsl stéttarfélaganna séu við félagsmenn sína. Bjarni bendir á að 95% félagsmanna Eflingar hafi ekki mætt í atkvæðagreiðsluna. 

„Ég les frétt um að í kosningu innan Eflingar hafi verið samþykkt að félagið segi sig úr Starfsgreinasambandinu (SGS). Í fréttinni kemur fram að 733 hafi greitt atkvæði með því að yfirgefa SGS en 292 hafi verið á móti. Formaðurinn fagnar því að félagsfólk sé sammála forystu félagsins um málið. Þó er það svo að 95% félagsmanna mættu ekki í atkvæðagreiðsluna. Og svo voru 1,4% á móti. Málið var því útkljáð með samþykki 3,5% félagsmanna,“ skrifar Bjarni í færslu sem hann birti á Facebook. 

Hann segir þetta vera ágætt dæmi um hve laus tengsl stéttarfélaganna séu við félagsmenn sína. Það byggi aftur á því að þeir njóti í reynd ekki frelsis til að standa utan félags og séu þvingaðir til greiðslu iðgjalds til félags sem þeir „ættu“ að tilheyra.

„Íslensku launafólki ætti að tryggja frelsi til að velja sér félag og standa utan félags kjósi það þann valkost, enda er frelsið til að vera ekki í félagi meðal þess sem stjórnarskránni er ætlað að tryggja. Um þetta höfum við sjálfstæðismenn lagt fram sérstakt þingmál á yfirstandandi þingi,“ segir Bjarni enn fremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert