Hlýjasti dagur ársins í dag

Möðruvallakirkja.
Möðruvallakirkja. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Í dag var hlýjasti dagur ársins til þessa þegar 18,9 gráður mældust á Möðruvöllum í Hörgárdal.

Þetta kemur fram í Facebook-færslu veðurvefsins Bliku.

Á veðurvefnum segir að næsthæsta hitastig sem hafi verið á landinu í dag hafi numið 18,6 gráðum og mældist bæði í Torfum í Eyjafjarðarsveit og Végeirsstöðum í Fnjóskadal.

Þriðja hæsta hitastigið mældist á Akureyri en þar voru 18,5 gráður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert