Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt konu í 45 daga skilorðsbundið fangelsi, en konan var fundin sek um þjófnað og fjársvik, með því að hafa stolið seðlaveski og síðan notað greiðslukort eiganda veskisins til að greiða fyrir vörur í netverslunum.
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum ákærði konuna fyrir athæfið 8. mars. Í ákærunni segir að hún hafi í ágúst 2021 verið um borð í farþegaferjunni Herjólfi þegar hún tók seðlaveski ófrjálsri hendi. Síðar sama dag sveik hún út vörur með því að nota greiðslukortið til að kaupa vörur í netverslunum. Samtals hljóðuðu viðskiptin upp á 51.914 kr.
Fram kemur í dómnum að konan hafi tvívegis áður sætt refsingum, m.a. var henni gert að greiða sekt í september fyrir umferðar-, fíkniefna- og vopnalagabrota. Auk þess var hún svipt ökurétti tímabundið.
„Refsing ákærðu er hæfilega ákveðin fangelsi í 45 daga. Að virtum atvikum máls og að teknu tilliti til þess að ákærða hefur ekki áður verið fundin sek um auðgunarbrot, þykir rétt að fresta fullnustu refsingarinnar,“ segir í dómi héraðsdóms.