Lausum störfum í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð fækkaði töluvert á milli ára eða um 240 störf og dróst hlutfall lausra starfa saman um 2,1% ef marka má starfaskráningu Hagstofu Íslands fyrir fyrsta ársfjórðung þessa árs.
Þrátt fyrir fækkun lausra starfa í atvinnugreininni var hlutfallsleg spurn eftir starfsfólki mikil. Laus störf voru 950 talsins og hlutfall lausra starfa 5,6%.
Hlutfallsleg spurn eftir starfsfólki var þó mest á meðal rekstraraðila í atvinnugreininni landbúnaði, skógrækt og fiskveiðum. Laus störf voru 390 talsins og fjölgaði um 310 á milli ára. Hlutfall lausra starfa fór úr 1,4% á síðasta ári í 6,3% í ár.
Alls voru samkvæmt starfaskráningu Hagstofunnar 7.550 laus störf á íslenskum vinnumarkaði á fyrsta ársfjórðungi þessa árs og hlutfall lausra starfa 3,3%. Fjöldi lausra starfa jókst lítið eitt, eða um 120 störf á milli ára, en á sama tíma fjölgaði mönnuðum störfum hlutfallslega meira og því dróst hlutfall lausra starfa á íslenskum vinnumarkaði saman um 0,1 prósentustig.
Til samanburðar töldust að meðaltali 8.400 einstaklingar atvinnulausir á fyrsta ársfjórðungi eða um 3,8% af heildarvinnuafli á aldrinum 16-74 ára.
Starfaskráning Hagstofu Íslands er ársfjórðungsleg úrtaksrannsókn sem nær til allra lögaðila á Íslandi sem eru með fleiri en einn starfsmann í vinnu á viðmiðunardegi rannsóknarinnar. Viðmiðunardagur starfaskráningar fyrir fyrsta ársfjórðung 2023 var 15. febrúar 2023. Alls fengust 573 svör og var svarhlutfall 95%.
Við túlkun á fjölda og hlutfalli lausra starfa þarf að hafa í huga að um úrtaksrannsókn er að ræða. Því þarf að hafa 95% öryggisbil til hliðsjónar við túlkun á niðurstöðum.