Margir vinna langa vinnuviku

Hlutfall einstaklinga á vinnumarkaði. sem vann að meðaltali langar vinnuvikur, …
Hlutfall einstaklinga á vinnumarkaði. sem vann að meðaltali langar vinnuvikur, eða 49 tíma á viku eða lengur á seinasta ári, var hæst hér á landi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ísland er í efsta sæti í nýjum samanburði Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, á lengd vinnutíma í 30 Evrópulöndum. Hlutfall einstaklinga á vinnumarkaði. sem vann að meðaltali langar vinnuvikur, eða 49 tíma á viku eða lengur á seinasta ári, var hæst hér á landi þar sem 13,5% starfandi fólks unnu að jafnaði 49 stundir eða lengur í hverri viku.

Grikkir koma næstir í röðinni þar sem hlutfallið var 12,6% í fyrra og Frakkar í þriðja sæti þar sem hlutfall fólks af heildarfjölda starfandi sem vann langa vinnuviku var 10,2%. Aðrar Evrópuþjóðir eru nokkuð neðar á listanum. Að meðaltali unnu 7% starfandi fólks í löndum Evrópusambandsins 49 stundir eða lengur að jafnaði á viku.

Ísland og Grikkland hafa skipst á sætum frá árinu 2021 en á því ári voru Grikkir efstir á listanum og Ísland í öðru sæti í samanburði Eurostat. Þrátt fyrir að hæsta hlutfall starfandi einstaklinga á vinnumarkaði hafi verið á Íslandi í fyrra hefur hlutfallið lækkað hér á landi frá árinu á undan þegar það var 14% að jafnaði.

Hægt er að nálgast umfjöllunina í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert