Nemandi fluttur á spítala eftir sprengingu við Langholtsskóla

Einn nemandi slasaðist við sprengingu á skólalóð Langholtsskóla í dag.
Einn nemandi slasaðist við sprengingu á skólalóð Langholtsskóla í dag. mbl.is/Sigurður Bogi

Nemandi í Langholtsskóla var fluttur á spítala eftir að sprenging átti sér stað, þegar þrír nemendur gerðu tilraunir með þurrís á skólalóðinni, utan skólatíma. 

Aðeins einn af nemendunum slasaðist á hendi, við tilraunastarfsemina, en bekkurinn hafði gert tilraunir með efnið í efnafræðitíma fyrr um daginn, samkvæmt skólastjóra Hreiðari Sigtryggssyni, í samtali við Vísir.is

Að sögn skólastjórans höfðu nemendurnir ekki fengið þurrísinn í skólanum heldur keypt hann sjálf. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert