Steinboginn yfir Flögufoss í Breiðdal er fallinn, en hann hefur trónað yfir fossinum í þrjá áratugi. Hrafnkell Hannesson, starfsmaður Náttúrufræðistofnun Íslands á Breiðdalsvík, telur að boginn hafi rofnað eftir mikla ofankomu í mars og apríl.
Hrafnkell er fæddur og uppalin í Breiðdalsvík, en hann tók fyrst eftir steinboganum yfir fossinum fyrir um 30 árum. Fyrir hafði áin runnið niður vinstramegin við hraunið, en braut sér leið í gegnum bogann og úr var fallegur fossinn.
Hann kveðst ekki hafa orðið þess var strax að boginn væri fallinn, en annar einstaklingur hafi greint honum frá því. Þá telur Hrafnkell ekki að neinn hafi orðið vitni að því þegar boginn féll. Hann segist hafa verið við því búinn að boginn myndi falla einhvern tímann en þyki það sorglegt engu að síður.
Hrafnkell segir að líklegast hafi mikil snjókoma í vetur og rigning í mars og apríl orðið til þess að boginn á endanum féll.
Fall bogans hefur breytt útliti fossins töluvert, en Hrafnkell kveðst vona að fólk hætti ekki að koma að skoða hann.
„Vonandi hættir fólk ekki að skoða hann, þetta er enn fallegur foss þrátt fyrir að boginn sé farinn.“
Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Breiðdalsvík greindi frá falli bogans á Facebook-reikningi sínum í dag og sagði það áminningu um að náttúran væri síbreytileg.