Villta vestur fjárhungraðra sveitarfélaga

Frá Samfestingnum í síðustu viku, balli félagsmiðstöðva á vegum Samfés.
Frá Samfestingnum í síðustu viku, balli félagsmiðstöðva á vegum Samfés.

Félagsmiðstöðvar hafa margsannað sig sem lykilþáttur í öflugu forvarnarstarfi Íslendinga og ljóst er að ávinningurinn af því að reka félagsmiðstöðvar er miklu hærri en kostnaðurinn af því að reka þær. Þetta kemur fram í facebook færslu Ólafs Bergs Ólafssonar, tómstundaleiðbeinanda í Fjörheimum félagsmiðstöð í Reykjanesbæ og umsjónarmanns ungmennaráðs bæjarins.

Í ályktun sem stjórn Samfés, landssamtök félagsmiðstöðva og ungmennahúsa á Íslandi, sendi frá sér í framhaldi af umræðu sem fram fór á aðalfundi samtakanna, er vax­andi áhyggj­um af niður­skurði sveita­fé­laga á kostnað barna og ung­menna lýst. Samtökin skora á sveit­ar­fé­lög að hugsa fram í tím­ann enda for­varn­ir sparnaður til framtíðar.

Talsverð umræða hefur sakapast í kjölfar ályktunarinnar þar sem lagaumhverfi félagsmiðstöðvar er meðal annars lýst af Ólafi sem „villta vestri fjárhungraðra sveitarfélaga.“

Ólafur gagnrýnir í færslu sinni lagaumhverfi félagsmiðstöðva. Samkvæmt lögum beri sveitarfélögum skylda til að bjóða upp á skólaþjónustu fyrir öll börn yngri en 18 ára, eða öllu heldur skóla, leikskóla og frístundarheimili. Þar segir hins vegar ekki að sveitarfélögum beri að reka félagsmiðstöð heldur einungis að þeim beri að gefa öllum nemendum kost á að taka þátt í tómstunda- og félagsstarfi. Líkt og fram kemur í færslu Ólafs getur það bæði verið liður í daglegu starfi og utan venjulegs skólatíma, til dæmis í félagsmiðstöð, frístundarstarfi eða skólahljómsveit. 

Hann segir jafnframt ljóst að sveitarfélög á Íslandi, sem flest reka félagsmiðstöðvar, hafi greinilega mjög ólíka skoðun á því hvað telst vera faglegt starf og hvað telst viðunandi að það starf kosti.

„Á sama tíma og viðvörunarbjöllur hringja allsstaðar á landinu í tengslum við vímuefnaneyslu og ofbeldismenningu ungmenna þá skera sveitarfélög niður í starfsemi félagsmiðstöðva. Hvenær verða stjórnvöld tilbúinn að viðurkenna mikilvægi félagsmiðstöðva? 

Það er nefnilega þannig að því meira sem við setjum í forvarnir og fræðslu núna, því minna greiðum við í flókin stuðningsúrræði og dýra sérfræðiþjónustu seinna. Sama á við viðhaldskostnað bygginga, því meira sem við leggjum í viðhald húsa núna því sjaldnar þurfum við að rífa heilu skólana vegna myglu seinna.

Við höfum nú aldeilis þurft að borga fyrir þann „rekstarsparnað“, viljum við virkilega gera sömu mistök gagnvart börnunum okkar?“

Færslu Ólafs má lesa í heild sinni hér að neðan. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert