Um 80 börn komu að gerð nýrrar fræðslumyndar UNICEF á Íslandi, Burtu með fordóma. Lokalag myndarinnar er endurgerð af Eurovision framlagi Pollapönk, Enga fordóma, og var unnið með hópi 40 barna og þjóðþekkts tónlistarfólks. Þetta kemur fram í tilkynningu UNICEF á Íslandi.
Fræðslumyndin er unnin í samráði við rýnihóp 40 barna í réttindaráðum þriggja grunnskóla. Voru þau spurð hvernig besta, skemmtilegasta og áhrifamesta fræðslumynd allra tíma yrði gerð og er afraksturinn myndin Burtu með fordóma verður sýnd í þeim grunnskólum landsins sem taka þátt í UNICEF-Hreyfingunni í ár.
Lagið sem er hluti af myndinni, fjallar um 2. grein Barnasáttmálans um jafnræði og bann við mismunun. Börn sem hafa þurft að flýja átök og setjast að á nýjum stað deila reynslu sinni og fjallað er um hlutverk okkar allra í því að bjóða þau velkomin.
Ævar Þór Benediktsson, leikari, rithöfundur og sendiherra UNICEF á Íslandi, fer þar með aðalhlutverk ásamt Snæ Humadóttur, Hilmari Mána Magnússyni, Ásdísi Fjeldsted og Emblu Karitas Magnúsdóttur.
Hreyfingin er fræðslu- og fjáröflunarverkefni UNICEF á Íslandi fyrir grunnskólabörn hér á landi. Markmið þess er að fræða börn um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og virkja þau til samstöðu með jafnöldrum sínum víða um heim.
Börnin fá fræðslu um réttindi sín, störf UNICEF í þágu allra barna og ólíkar aðstæður jafnaldra sinna í öðrum löndum. Þau láta síðan til sín taka með áheitasöfnun sem nær hámarki á sérstökum viðburðadegi sem skólinn skipuleggur. Hugmyndin er að þau átti sig á að öll börn eigi sömu réttindi og að saman geti þau lagt sitt af mörkum til að gera heiminn að betri stað.
Fræðslumyndina „Burtu með fordóma“ má nálgast textaða og táknmálsþýdda í heild sinni á youtube síðu UNICEF á Íslandi.