Gul viðvörun og líkur á vetrarfærð

Veðurstofan varar við því að það geti orðið vetrarfærð og …
Veðurstofan varar við því að það geti orðið vetrarfærð og skyggni geti orðið mjög takmarkað, slydda eða snjókoma á fjallvegum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir fyrir helgina.

Á miðnætti laugardagskvöld tekur í gildi gul viðvörun á Ströndum, Norðurlandi og á Miðhálendi. Klukkan 6 um morgun á sunnudag bætist við gul viðvörun fyrir Austurland að Glettingi. 

Spáð er 8-18 m/s og varar Veðurstofan við því að það geti orðið vetrarfærð og skyggni geti orðið mjög takmarkað, slydda eða snjókoma á fjallvegum.

Á miðnætti á sunnudagskvöld hafa allar viðvaranir dottið úr gildi.

Önnur lægð á mánudaginn

Á morgun, laugardag, nálgast dýpkandi lægð úr suðri og gengur þá í austan- og norðaustankalda eða strekking með rigningu, fyrst um landið sunnanvert, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar.

Gert er ráð fyrir að lægðamiðjan gangi til norðurs yfir austanvert landið. Vindur snúist í vestan- og norðvestanátt þegar líður á daginn. Allhvasst eða hvasst getur orðið syðst um kvöldið.

Á sunnudaginn gengur lægðin norðaustur út af landinu og gerir þá í norðanátt og kólnar í veðri, hiti 1 til 6 stig. 

„Á mánudaginn er síðan von á enn einni lægðinni, en meira um það seinna,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert