Ofurölvi einstaklingur var handtekinn fyrir þjófnað úr verslun í Kringlunni í dag.
Er hann vistaður í fangaklefa en skýrsla verður tekin af honum þegar rennur af honum víman, að því að fram kemur í dagbók lögreglu.
Einnig var tilkynnt um þjófnað úr verslun í miðbæ Reykjavíkur og í Kópavogi.
Í þremur mismunandi hverfum Reykjavíkur voru bifreiðar stöðvaðar þar sem ökumenn voru ýmist grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna eða áfengis.
Tveir af þeim voru sviptir ökuréttindum vegna fyrri afskipta lögreglu.