Helena Dalli, framkvæmdastjóri jafnréttismála hjá Evrópusambandinu, var stödd hér á landi í tveggja daga heimsókn þar sem hún flutti inngangserindið á samráðsfundi IDAHOT+ Forum 2023, sem ríkisstjórn Íslands og Evrópuráðið stóðu fyrir í Hörpu í gær.
Í erindi sínu fjallaði hún um mikilvægi þess að efla og standa vörð um réttindi hinsegin fólks með fyrstu jafnréttisstefnu framkvæmdastjórnar ESB fyrir hinsegin fólk fyrir árin 2020-2025. Markmiðið með stefnunni er samband jafnréttis þar sem jafnrétti og mannréttindi eru órjúfanlegur hluti af heildinni og sameiginlegar skuldbindingar eru lykilatriði.
„Við lögðum til að efla réttarvernd gegn mismunun með því að auka vald og sjálfstæði jafnréttisstofnana í öllum aðildarríkjum ESB. Við lögðum fram aðgerðir gegn hatursglæpum og hatursorðræðu gegn hinsegin fólki, sem ESB telur nú til einkar alvarlegra glæpa. Við kynntum samræmdar reglur á vettvangi ESB um foreldrahlutverk í alþjóðlegum einkamálarétti, auk þess sem við styrkjum starf borgaralegra samtaka með verulegum fjárveitingum. Markmið okkar er að fagna öllum þeim fjölbreytileika sem býr innan Evrópusambandsins,“ sagði Dalli við Morgunblaðið.
Árið 2019 var Dalli útnefnd framkvæmdastjóri jafnréttismála hjá Evrópusambandinu. Hún hefur meðal annars barist fyrir réttindum fatlaðs fólks, tekið þátt í að þróa evrópska kynjastefnu til að bæta réttindi kvenna enn frekar með gagnsæi launa og tryggja innleiðingu tilskipunar um konur í stjórnum. Þá hefur hún lýst yfir áhyggjum af vaxandi ofbeldi og hatri í garð hinsegin fólks og baráttufólks fyrir mannréttindum í Evrópu.
Dalli segir mikið verk fram undan hvað viðkemur kynjajafnrétti í Evrópu og segir löndin í álfunni komin mislangt á leið í þeim málefnum, þótt boltinn sé vissulega farinn að rúlla. Þá nefnir hún að þetta sé í fyrsta sinn sem Evrópusambandið hafi sett sérstaka stefnu í málum er varða jafnrétti en meðal annars hefur verið einblínt á kynjajafnrétti, ofbeldi gegn konum, aðgerðir gegn rasisma og hatursorðræðu í garð LGBTQ+ einstaklinga. Dalli leggur ríka áherslu á að allir eigi að fá að njóta sín eins og þeir eru og fá sömu tækifæri til að blómsta og nýta hæfileika sína óháð kyni og stöðu.
Hægt er að lesa viðtalið í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.