Menntaskólinn á Akureyri hefur komist að þeirri niðurstöðu að ásakanir gagnvart fyrrverandi nemanda skólans eigi sér ekki „stoð í raunveruleikanum.“ Ásakanirnar hafi verið kannaðar betur þegar aðrar eins komu upp gegn sama nemanda í haust er hann var við nám við Menntaskólann við Hamrahlíð.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá skólameistara Menntaskólans á Akureyri sem birt hefur verið á vefsíðu skólans.
Þar segir að nemandinn hafi neyðst til þess að hætta námi við MA vorið 2021 vegna „sögusagna og alvarlegra ásakana.“ Þegar ásakanirnar hafi komið upp í MH hafi ásakanirnar úr MA verið skoðaðar af ráðgjafarhópi á vegum mennta- og barnamálaráðuneytis og sú skoðun borið fyrrnefnda niðurstöðu.
Fram kemur að málið sé litið alvarlegum augum enda hafi ásakanirnar haft mikil áhrif á nemandann sem um ræðir. Hann sé nú beðinn afsökunar á því að ekki hafi verið tekið rétt á málunum á meðan á veru hans í MA stóð.
Þá hafi skólinn unnið með mennta- og barnamálaráðuneytinu að viðbragðsáætlun fyrir mál sem þessi og verði hún birt á næstu vikum.
Tilkynningu MA má sjá með því að smella hér.