Merkilegt en var ekki markmið

Nýr formaður Fram á heimavelli í Úlfarsárdal í gær.
Nýr formaður Fram á heimavelli í Úlfarsárdal í gær. mbl.is/Hákon

Sigríður Elín Guðlaugsdóttir er tekin við formennsku í Knattspyrnufélaginu Fram og var hún kjörin á aðalfundi félagsins á miðvikudagskvöldið.

Eru þetta nokkur tíðindi í ljósi þess að Sigríður Elín er fyrsta konan sem gegnir þessu embætti en Fram er 115 ára gamalt félag. „Eigum við ekki að segja að ég hafi alla tíð verið mikill jafnréttissinni og trúi því að fjölbreytileiki búi til verðmæti. Ef fjölbreytileiki er í þeim hópum þar sem ákvarðanir eru teknar þá fáum við bestu niðurstöðuna. Það var ekki sérstakt markmið hjá mér að vera fyrsta konan sem yrði formaður en er engu að síður merkilegt,“ segir Sigríður og bendir á að fleiri félög hafi nýlega valið konu til forystu í fyrsta sinn eins og KR.

Hægt er að nálgast umfjöllunina í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert