„Að fá það verkefni í hendurnar að kanna fýsileika þess að sameina tvo skóla er að sjálfsögðu auka verkefni í lok skólaárs og ekkert hægt að gera með vitrænum hætti á 2-4 vikum,“ segir Helga Sigríður Þórsdóttir, rektor Menntaskólans við Sund, en skólunum var gefið það verkefni að kanna fýsileika sameiningar fyrir skömmu.
Hún segir skólastjórnendur þó gera sitt besta. „Þetta verður að hafa sinn gang og það er ekkert víst að ráðherra fái þetta tímanlega,“ segir Helga Sigríður.
Hún bendir á að öllum þyki vænt um sinn skóla og þá sérstöðu hans. „Okkur líður yfirleitt best í okkar örugga umhverfi og á sama tíma erum við að fá þær fréttir að ekki liggi fyrir framkvæmdaáætlun,“ segir Helga.
Vísar hún þar til fregna af því að kostnaður við framkvæmdir við MS eru áætlaðar 3-5 milljarða króna vegna mygluvandamála.
Spurð segir hún í mörg horn að líta þessa dagana vegna alls sem upp hefur komið.
„Ég get alveg viðurkennt það að maður reiknar ekki með þessum verkefnum þegar maður er fyrst og fremst að hugsa um kennslu alla jafna. Þegar ofan í þetta koma rakaskemmdir,“ segir Helga
Hún segir það vel geta verið að nemendur í 10. bekk muni forðast það að sækja um námsvist í skólanum vegna mygluvandamála. „Almennt séð er það þó þannig að nemendur í 10. bekk eru löngu búnir að ákveða hvert þeir vilja fara,“ segir Helga en umsóknarfrestur rennur út í byrjun júní.