Smávægileg brot útiloka veitingu skotvopnaleyfis

MYNDATEXTI Á veiðum.
MYNDATEXTI Á veiðum. Ingólfur Guðmundsson

„Taka þarf afstöðu til hvort það sé vilji löggjafans að það að hafa brotið gegn tilteknum lögum skuli útiloka menn ævilangt frá skotvopnaleyfi óháð alvarleika brots, betrun eða bættri hegðun í samfélagi,“ segir í umsögn frá lögreglustjóranum á Vesturlandi við frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á vopnalögum.

Vísar hann þar til þess að í frumvarpinu er gert ráð fyrir að lögreglustjóri geti veitt skotvopnaleyfi þótt viðkomandi hafi brotið af sér ef brotið er smávægilegt eða langt um liðið frá því að það var framið en sett eru skilyrði um að refsing hafi ekki farið fram úr sektum eða fangelsi allt að sex mánuðum „og ekki verið um að ræða árásar- eða ofbeldisbrot, brot á lögum um ávana- og fíkniefni, ítrekuð ölvunarbrot, ítrekuð brot gegn ákvæðum umferðarlaga um akstur undir áhrifum áfengis, fíkniefna eða annarra lyfja eða brot á lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum eða lögum þessum.“

Hægt er að nálgast umfjöllunina í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Vopnalagafrumvarpið er í allsherjar- og menntamálanefnd.
Vopnalagafrumvarpið er í allsherjar- og menntamálanefnd. mbl.is/Ingó
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert